MySpace síðan mín

Auglýsing

03. maí 2007 klukkan 23:34
já Anna mín ég verð víst að blogga aftur :) ég hef bara ekkert að segja

lífið er ekkert voðalega skemmtilegt þessa stundina, er bara sveitt hérna að læra undir próf en því fer að ljúka fljótlega og þá verður sko þessi viðbjóðslega ógeðslega prófljóta tekinn í gegn!!!!

Anna ég skil ekki hvað það er sem þig langar að lesa, þú ert ALLTAF með mér, common hvað við erum ekki búnar að vera lýmdar saman í marga klst á dag og þú veist meira að segja hvenar ég nota klóstið!!

En þetta sem hún Lena var að segja með Tyrkland að þá er búið að bjóða mér að flytja til Tyrklands og giftast þar svaka sætum dúd! þannig fyrir ykkur sem ekki vitið er ég núna trúlofuð og er tilvonandi frú Nazim Glottandi 
ég má eyða fullt af peningum og leika mér eins og ég vil, ég þarf ekki að ganga með svona drasl á hausnum nema í kringum fjölskyldu hans og vitiði hvað er það eina sem hann fer fram á í staðinn Hissa getið ALDREI giskað hahahaha hann er alveg fullkominn, elskar börn og ætlar meira segja að leyfa mér já nota bene að leyfa mér að fara heim og hitta fjölskylduna mína ohhhhhhhh

En þangað til þá mun ég leika lausum hala á klakanum góða Brosandi og kannski djamma nóg þar sem ég mun ekki getað drukkið 4live eftir að ég er gift!!! mun ég lifa það af múhahahahaha

Eyjan trúlofaða kveður
Bjarney Rós Guðmundsdóttir

sko mig

19. apríl 2007 klukkan 22:37
aldrei hefði ég trúað þessu uppá mig að bara blogga með 2 daga millibili hehe :)

Skellti mér uppá skaga í gær til Erlu skvís með Önnu að læra og viti menn við vorum bara alveg hrikalega duglegar, hver átti von á því ekki ég allaveganaUllandi en svo svona að nálgast 11 var okkur farið að þyrsta í smá bjór þannig við létum undan löngun okkar, sötruðum smá bjór og skrifuðum ritgerðir. Alveg ágætisblanda svo lengi sem maður kannski passar að bjórarnir verði ekki of margir. Anna sofnaði næstum við tölvuna og við Erlum skelltum okkur bara á Mörkina a.k.a pöbbinn á skaganum. Mín ætlaði nú ekkert að fara sko enda fannst mér ritgerðar/prófljótan vera í hámarki en Erla sannfærði mig, ágætt að kíkja svona á pöbb útá landi hehehe maður er sætur sama hvernig þú lítur út Glottandi 
En ég vildi bara segja sko Erla og Anna eru þær einu sem commenta, kannski eru þær þær einu sem lesa þetta svo fólk endilega látið vita af ykkur!!!!!
Læt þetta duga í bili farin að læra

Eyjan kveður
Bjarney Rós Guðmundsdóttir

Nenei bloggað aftur

17. apríl 2007 klukkan 18:03
Sko hvað sagði ég, ég lofaði að blogga aftur hehe og stend ég ekki alltaf við það sem ég segi :)
ég veit reyndar EKKERT hvað ég á að skrifa um hmmm klósettferðir kannski??

Síðasta djamm fyrir próf um helgina með Önnu skvís, alltaf það sama ætla ekki einu sinni að eyða mörgum orðum um það, bara fór með Önnu á djammið  og við vorum frekar slappar bara, komnar heim um 4 heheh don´t have to say no more um það djamm.

Er á fullu í ritgerðarsmíðum og já reyna byrja lesa undir próf, var svona farin að finna fyrir einhverri ritgerðarljótu sem hefði svo breyst í prófljótu á endanum!!  Ég mundi of vel eftir rótinni, augnbrúnaleysinu og loðnu leggjunum (of miklar upplýsingar?) fyrir jólin að ég gerði fyrirbyggjandi aðgerðir, skellti mér bara í litun hehehe :) verður annað mál með leggina !!

Jæja ætla skoppast út í sígó í pásunni minni :)

Eyjan kveður
Bjarney Rós Guðmundsdóttir

Loksins loksins

13. apríl 2007 klukkan 10:28
Jæja loksins kem ég með fyrstu færsluna á þetta blessaða blogg, þar sem Anna skrifaði í gestabókina mína í gær eða fyrradag þá get ég eiginlega ekki beðið með þetta mikið lengur Ullandi
Vitiði ég hef ekki hugmynd um það afhverju ég ákvað að fá mér blogg því ég efast um að einhver nema kannski Anna hafi mikinn áhuga á að lesa um mitt tilbreytingalausa skemmtilega líf. En ég ætla að prufa og ég skal koma til með að blogga reglulega svo þið sem hafið áhuga á mínu lífi getið lesið hehe vonandi lesa þetta fleiri en Anna  Hlæjandi og ég veit að hún verður dugleg að minna mig á að blogga. Ég meina það er örugglega meira en 2 mánuðir síðan ég opnaði þessa síðu og hún ákvað að skrifa í gestabókina til að setja pressu á mig að setja inn þessa fyrstu færslu, soldið asnalegt að vera komin með færslu í gestabókina en enga færslu á bloggið.

Það styttist óðfluga í próf hjá okkur í skólanum, mikil ritgerðarvinna framundan og hefði átt að vera búin að vera undanfarna daga líka en eins og mér einni er lagið þá fresta ég öllu fram á síðustu stundu og kafna úr stressi og svefnleysi í marga daga. En ég er byrjuð, alveg satt hehe og það er ótrúlegt alveg hvað þessi prófljóta er fljót að færast yfir mann eða á ég kannski að kalla þetta ritgerðarljótu núna sem breytist í prófljótu eftir 1,5 viku Óákveðinn Ég man sko alveg hvernig þetta var fyrir jólaprófin.

En vitiði ég ætla ekki að hafa þessa fyrstu færslu lengri í dag, get sko alveg lofað ykkur að ég mun ekki blogga á hverjum degi, kannski eins gott þá hefði ég ekki mikið að segja frá nema eins og hei ég fór í kringluna í dag!

Eyjan kveður
Bjarney Rós Guðmundsdóttir